ÞG verk hefur verið verðlaunað sem framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi.
Markmið félagsins hefur ávallt verið að skila góðu verki til sinna viðskiptavina á íbúðamarkaði sem og útboðsmarkaði, að stunda traust og örugg viðskipti og uppfylla væntingar viðskiptavina.
Við höldum ótrauð áfram á þessari braut og leggjum okkur fram við að bæta okkur á öllum sviðum.
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.
Skilyrðin eru:
• Hefur skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár • Líkur á alvarlegum vanskilum þess eru minni en 0,5% • Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð • Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð • Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð • Eignir hafa numið 80 milljónum eða meira þrjú ár í röð • Framkvæmdastjóri er skráður í hlutafélagaskrá • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
