
Umhverfis- og sjálfbærnistefna
Umhverfisstefna.
ÞG Verktakar (ÞG) leggja áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif í allri starfsemi sinni og stuðla að sjálfbærni í byggingariðnaði. Við viljum vera fyrirmynd í umhverfisvænum rekstri og tryggja að verkefni okkar stuðli að heilbrigðu umhverfi fyrir komandi kynslóðir.
Helstu áherslur í umhverfis og sjálbærnimálum:
- Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
- Minnka úrgang til urðunar
- Viðhafa ábyrga notkun orkugjafa s.s. eldsneytis, raforku og vatns
- Mæla og miðla upplýsingum um stöðu og árangur og auka þannig umhverfisvitund starfsmanna og viðskiptavina
- Tryggja jafnrétti og fjölbreytileika í starfseminni
- Stuðla að öryggi og vellíðan starfsmanna
- Auka gagnsæi í skýrslugjöf og birta árlega sjálfbærniskýrslu