Fara í efni
ÞG Verk

31. október 2023

ÞG Verk hlýtur ISO 9001 vottun

ÞG Verk hlýtur ISO 9001 vottun

Undanfarin misseri hefur ÞG Verk unnið að því að styrkja gæðakerfi sitt til að bæta stjórnun, verklag og skjalavistun í framkvæmdum sínum og styðja við gæðastefnu fyrirtækisins.

Síðastliðið sumar var svo stigið það skref að óska eftir vottun á gæðakerfinu skv. ISO 9001:2015 og var BSI valið til verksins. Úttektir fóru fram í júlí og ágúst og vottunarskírteini var gefið út 23. október síðastliðinn. Vottunin hefur gildistíma til þriggja ára með árlegu eftirliti vottunaraðila á gildistímanum.

Umfang gæðakerfisins er: Mannvirkjagerð og verkefnastjórnun í mannvirkjagerð. (General construction and building project management).

ÞG Verk hlýtur ISO 9001 vottun