Fara í efni
ÞG Verk
Meðferðarkjarni nýs Landspítala, tölvumynd

Útboðsverk · Nýr Landspítali · Verklok 2028

Landspítalinn.

ÞG Verk vinnur að tveimur verkum á Landspítalareit: innanhússfrágangi 5. og 6. hæðar meðferðarkjarnans og uppsteypu og utanhússfrágangi húss heilbrigðisvísindasviðs HÍ.

Innanhússfrágangur meðferðarkjarna

ÞG Verk vinnur að innanhússfrágangi 5. og 6. hæðar meðferðarkjarna nýs Landspítala. Á hæðunum eru legudeildir nýja spítalans, 193 talsins, með sjúkrastofum, einangrunarstofum og ýmsum öðrum rýmum fyrir starfsfólk og gesti.

Helstu verkþættir eru múrverk, innveggir, innréttingar og annar frágangur ásamt allri lagna- og raflagnavinnu. Flatarmál legudeildanna er um 14.000 fermetrar.

Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ

ÞG Verk vinnur að uppsteypu og utanhússfrágangi húss heilbrigðisvísindasviðs á Landspítalareit. Nýbyggingin tengist núverandi byggingu sviðsins, Læknagarði, og mun hýsa nær allar deildir heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Nýbyggingin er um 11.000 fermetrar að stærð.

VerkkaupiNýr Landspítali
Meðferðarkjarni6,8 ma.kr. án vsk.
HófstMars 2025
VerklokJanúar 2028
Hús heilbrigðisvísindasviðs3,3 ma.kr. án vsk.
HófstÁgúst 2024
VerklokFebrúar 2027

Spurningar um verkið?

Hafðu samband við ÞG Verk. Við svörum fljótt og beint.

Hafa samband