Fara í efni
ÞG Verk
Stálbitar brúarinnar á brúardekkinu, horft út yfir ÖlfusáDrónamyndband ÞG Verks, 6. október 2026

Útboðsverk · Vegagerðin · Verklok haust 2028

Ný brú yfir Ölfusá.

ÞG Verk hannar, byggir og fjármagnar 330 metra stagbrú yfir Ölfusá fyrir Vegagerðina, ásamt 3,7 km af nýjum Hringvegi, mislægum gatnamótum og undirgöngum.

330 mLengd brúar
19 mBreidd brúar
60 mHæð turns
3,7 kmNýr Hringvegur

Myndavélar ÞG á verkstað

Frá Ölfusá.

Fastar vélar ÞG fylgjast með brúnni rísa frá 2025 til opnunar 2028. Bein útsending bætist hér við.

TIME-LAPSE · SUMARIÐ 2026
StaðsetningAustan Selfoss, horft yfir ána
Áfangi núnaBrúargólfið komið yfir ána
VélarFastar vélar ÞG á verkstað
TímabilJúní til ágúst 2026
Sjá framvinduna

Myndir úr vélunum safnast í time-lapse sem sýnir brúna rísa, mánuð fyrir mánuð, til opnunar haustið 2028.

Um verkið

Hönnun, bygging og fjármögnun.

Ný Ölfusárbrú er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og ÞG Verks. Verkið er alútboð þar sem ÞG Verk ber ábyrgð á fullnaðarhönnun, byggingu og fjármögnun á verktímanum.

Framkvæmdin er mun stærri en brúin ein. Hún felur í sér 330 metra stagbrú, 3,7 kílómetra af nýjum Hringvegi, mislæg gatnamót og þrenn steypt undirgöng fyrir bíla, gangandi, hjólandi og hestamenn. Brúin ber líka stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn, ídráttarrör fyrir háspennustrengi rafmagns og ljósleiðara yfir Ölfusá.

VerkkaupiVegagerðin
TegundAlútboð
MannvirkiStagbrú
Lengd brúar330 m
Breidd brúar19 m
Samningur20. nóvember 2024
VerklokHaust 2028
StaðsetningAustan Selfoss

Svona verður brúin

Fjórir hlutar framkvæmdarinnar.

Ásýndarmynd af nýrri Ölfusárbrú úr vestri
Ásýndarmynd: COWI fyrir Vegagerðina
01

330 metra stagbrú

Brúin verður 330 metra löng og 19 metra breið, með 60 metra turn á eyjunni í miðri á.

02

Mislæg gatnamót og vegarkaflar

Ný mislæg gatnamót og 3,7 km af nýjum Hringvegi tengja brúna við þjóðvegakerfið.

03

Undirgöng

Þrenn steypt undirgöng fyrir bíla, gangandi, hjólandi og hestamenn auka öryggi og flæði.

04

Lagnir veituaðila

Stofnlagnir fyrir heitt og kalt vatn og ídráttarrör fyrir háspennustrengi rafmagns og ljósleiðara verða lögð yfir ána í brúnni.

Framvindan

Frá undirstöðum að opnun.

2024

Samningur

Undirritaður 20. nóvember 2024, fyrsta skóflustunga sama dag.

2025 til 2026

Undirstöður

Undirstöður á árbökkum og eyjunni, bráðabirgðabrú út í eyju.

2026

Brúardekk samsett

Stálvirki flutt á verkstað, soðið saman og undirbúið til dráttar.

Október 2026

Brúargólf dregið yfir ána

Brúargólfið náði alla leið yfir Ölfusá 31. október 2026.

Núna

2026 til 2027

Turninn rís

Turninn í Laugardælaeyju reistur upp á undirstöðum.

2027

Brúarhafið tengt

Steypt brúardekk sett upp, kantbitar steyptir og burðarstögin sett upp.

2028

Frágangur

Gengið frá vegtengingum, vegriði o.fl., brúardekk malbikað.

Haust 2028

Opnun

Endanlegur frágangur allra mannvirkja í verkinu.

Myndbönd af verkstað

Brúin er komin yfir.

Laugardaginn 31. október 2026 náði brúargólfið alla leið yfir Ölfusá. Hér er myndin frá deginum og eldri upptökur af verkstaðnum frá ágúst og október.

31. október 2026Brúin komin yfir Ölfusá. Þorvaldur Gissurarson forstjóri, Skúli Sigvaldason staðarstjóri og Magnús Karl Gylfason framkvæmdastjóri verkefna segja frá deginum.
6. október 2026Flogið eftir stálbitum brúarinnar á brúardekkinu, yfir bráðabirgðabrúna og undirstöðurnar á eyjunni
6. október 2026Mót og krani við stöpulinn á árbakkanum
7. október 2026Undirstaða stöpuls og járnabinding, séð beint ofan frá
28. ágúst 2026Járnabinding undirstöðu við ána, bráðabirgðabrúin í baksýn

Spurningar um verkið?

Hafðu samband við ÞG Verk. Við svörum fljótt og beint.

Hafa samband