Fara í efni
ÞG Verk
Asparskógar 1 á Akranesi í kvöldsól, tölvumynd

Eigið verk · Akranes · 2023

Asparskógar 1.

28 íbúðir í fjórum tveggja hæða húsum á Akranesi, tveggja til fimm herbergja, með sér inngangi að hverri íbúð.

Akranes

Sér inngangur að hverri íbúð.

Asparskógar 1 eru fjögur hús á tveimur hæðum með samtals 28 íbúðum, tveggja til fimm herbergja. Sér inngangur er að öllum íbúðum.

Burðarkerfi húsanna er úr forsteyptum einingum frá Einingaverksmiðjunni. Íbúðirnar fóru í sölu í febrúar 2023 og salan gekk vel.

Íbúðirnar eru ekki lengur í sölu hjá ÞG Verk. Lausar íbúðir eru á sölusíðunni.

Grunnmyndir Asparskóga 1 (PDF)

Asparskógar 1, tveggja hæða hús með görðum, tölvumynd
Asparskógar 1, tölvumynd.
Akranes séð af Akrafjalli

Bærinn

Hálftíma frá Reykjavík.

Á Akranesi hefur mikil uppbygging átt sér stað undanfarin ár og bærinn er í örum vexti. Akranes er í rúmlega 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík, svo það er engin fyrirstaða fyrir þá sem starfa á höfuðborgarsvæðinu.

Á Akranesi eru tveir grunnskólar, fjórir leikskólar og framhaldsskóli. Mikill metnaður er lagður í íþróttastarf og aðstaða ÍA er með þeim betri á landinu.

Útivist

Haf, fjöll og Guðlaug.

Íþróttasvæðið er stórt og fellur vel að náttúrunni meðfram sjávarsíðunni. Margir sækja náttúrulaugina Guðlaugu, þar sem útsýnið yfir hafið er einstakt. Á Akranesi er líka golfvöllur sem hefur verið hluti af íslensku mótaröðinni.

Stutt er í þekktar fjallgönguleiðir, fjallasýnin er stórbrotin og smábátahöfnin hefur sinn sjarma, ásamt allri helstu þjónustu.

Sólarlag við Guðlaugu á Langasandi

Ertu að leita að íbúð?

Allar lausar íbúðir ÞG Verks eru á einum stað.

Íbúðir til sölu