Fara í efni
ÞG Verk

Eigin verk · Garðabær · 2019 til 2024

Urriðaholt.

ÞG Verk hefur byggt yfir 200 íbúðir í Urriðaholti, fyrsta vistvottaða hverfi landsins. Hér eru verkin fimm á einum stað, frá Vinastræti efst á hæðinni niður að Grímsgötu.

Hverfið við vatnið

Fimm verk í sama hverfinu.

Urriðaholt er fyrsta hverfið á Íslandi sem hlaut vistvottun samkvæmt BREEAM Communities. ÞG Verk hefur byggt þar íbúðir frá 2019, frá Vinastræti efst á hæðinni niður að Maríugötu og Grímsgötu.

Íbúðirnar á þessari síðu eru allar seldar eða ekki lengur í sölu hjá ÞG Verk. Lausar íbúðir eru á sölusíðunni, og í Urriðaholti selur ÞG Verk nú íbúðir fyrir 50 ára og eldri í Norðurhlíð.

Íbúðir til sölu núna

Vinastræti 2 til 16 í Urriðaholti, tölvumynd úr lofti
Vinastræti 2 til 16: fjögur hús efst á hæðinni, tölvumynd.
Vinastræti 14 til 16, tölvumynd

Vinastræti 2 til 16 · 2019 til 2020

82 íbúðir efst á hæðinni.

Vinastræti er efst í Urriðaholti og margar íbúðanna eru með frábæru útsýni. Skóli og leikskóli eru í göngufæri og golfvöllurinn og Heiðmörk í næsta nágrenni.

Sala á Vinastræti 2 til 4 hófst í júlí 2019. Haustið 2020 var verið að ljúka byggingu allra 82 íbúðanna og aðeins sex voru óseldar, allar í Vinastræti 14 til 16.

Vinastræti 2 til 4, tölvumynd
Vinastræti 2 til 4
Vinastræti 6 til 8, tölvumynd
Vinastræti 6 til 8
Vinastræti 10 til 12, tölvumynd
Vinastræti 10 til 12

Innandyra í Vinastræti

Stofa í íbúð við Vinastræti
Eldhús og borðstofa í íbúð við Vinastræti
Stofa með stórum glugga í íbúð við Vinastræti
Baðherbergi í íbúð við Vinastræti
Baðherbergi og gangur í íbúð við Vinastræti
Svalir í íbúð við Vinastræti

Maríugata 9 til 15 · 2022

Íbúðir við golfvöllinn.

Maríugata 13 til 15 eru tvö fimm hæða hús með 17 íbúðum hvort, og í Maríugötu 9 til 11 eru 42 tveggja til fimm herbergja íbúðir í lyftuhúsi. Margar íbúðanna eru með útsýni yfir golfvöllinn Odd og Heiðmörk og bílskúr fylgir nokkrum þeirra.

Söluvefur Maríugötu 13 til 15 opnaði í febrúar 2022, og Maríugata 9 til 11 fylgdi á eftir.

Skilalýsing Maríugötu 9 til 11 (PDF)

Maríugata 9 til 15 í Urriðaholti, tölvumynd
Maríugata, tvö hús og leiksvæði, tölvumynd
Maríugata 9 til 15 og stígur, tölvumynd
Maríugata 9 til 15 séð af grasflöt, tölvumynd
Maríugata 38 til 40, tölvumynd

Maríugata 34 til 40 · 2021

37 bjartar íbúðir.

Maríugata 38 til 40 er fimm hæða fjölbýlishús með 33 íbúðum og Maríugata 34 til 36 er tveggja hæða fjórbýli. Margar íbúðanna eru með útsýni yfir golfvöllinn og Heiðmörk og bílastæði eða bílskúr fylgir nokkrum þeirra.

Söluvefur húsanna opnaði í febrúar 2021.

Maríugata 34 til 36, fjórbýli, tölvumynd
Maríugata 34 til 36, fjórar íbúðir
Grímsgata 2 til 4, tölvumynd
Grímsgata 2 til 4, 33 íbúðir, 2024

Grímsgata 2 til 4 · 2024

Nýjasta verkið í hverfinu.

33 íbúðir við Grímsgötu, steinsnar frá Maríugötu og Urriðaholtsskóla.

Kort af Urriðaholti og tengingum við höfuðborgarsvæðið
Urriðaholt og tengingar við höfuðborgarsvæðið

Fyrsta hverfið á Íslandi sem hlaut vistvottun samkvæmt BREEAM Communities.

Urriðaholt, Garðabæ
Fólk á gangi við fjölbýlishús í Urriðaholti
Skilti: Velkomin í Urriðaholt, þorpið við vatnið

Hverfið

Lifandi byggð í sátt við náttúruna.

Við hönnun Urriðaholts var lögð áhersla á að byggðin væri lifandi og samfélagið sjálfstætt. Hverfið byggir á þeirri hugsjón að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr, í sátt við náttúruna og umhverfið allt.

Húsin eru steinsnar frá Urriðaholtsskóla. Golfvöllurinn Oddur er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilsstaðahrauni og við Urriðavatn. Hverfið nýtur allrar þjónustu Garðabæjar. Nánar á urridaholt.is.

Umhverfið

Heiðmörk við bæjardyrnar.

Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk, stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, og tengist því beint með göngu- og hjólastígum. Í jaðri hverfisins eru Búrfellshraun og Urriðavatn með fjölskrúðugu lífríki.

Hverfið liggur í aflíðandi halla sem skapar skjól og útsýni. Stutt er í góðar samgönguæðar og verslun í Kauptúni, og aðeins nokkurra mínútna akstur er í þjónustu í Garðabæ og Hafnarfirði.

Golfvöllurinn Oddur og tjarnir við Urriðavatn
Urriðaholtsskóli úr lofti

Skólastarf

Leik- og grunnskóli í sama húsi.

Urriðaholtsskóli starfar á tveimur skólastigum, leik- og grunnskóla, og fullbyggður verður hann fyrir börn á aldrinum 1 til 15 ára.

Skólinn byggir á opnu skipulagi fyrir hvern árgang. Í stað hefðbundinna bekkjarstofa hefur hver árgangur sitt heimasvæði, sem skiptist í stórt sameiginlegt kennslusvæði og nokkur minni lokuð rými, ásamt vinnuaðstöðu fyrir kennara.

Ertu að leita að íbúð?

Allar lausar íbúðir ÞG Verks eru á einum stað.

Íbúðir til sölu