Í síðustu viku kynnti ÞG verk ehf. nýjar íbúðir sem fyrirtækið hefur verið að byggja við Álalæk á Selfossi. Alls er um 57 íbúðir að ræða í þremur fjölbýlishúsum. Íbúðirnar eru 2-6 herbergja frá 60 til 120 fermetra að stærð. Fyrsta byggingin sem er með 23 íbúðum hefur þegar verið afhent eigendum. Þar eru einungis þrjár íbúðir óseldar. Íbúðunum fylgja rafhleslustöðvar sem íbúar geta notað til að hlaða rafmagnsbíla. Íbúðirnar eru á töluvert lægra verði en t.d. á höfuðborgarsvæðinu og því álitlegur kostur fyrir marga.

Sindri Már Guðbjörnsson er byggingastjóri hjá ÞG verk og vinnur að verkefninu ásamt Brynjari Erni Áskelssyni. Þeir eru í stjórnunarteymi á staðnum.

„Strax þegar við byrjuðum á framkvæmdum byrjuðum við að pæla í þessum hleðslustöðvum. Ég hafði mikinn áhuga á að leysa það vandamál. Við erum stór aðili á byggingamarkaði og höfum stundum lent í vandamálum þessu tengt sem við höfum þurft að leysa. Það er mjög mikið álag á þessar lagnaleiðir og þær eru tengdar inn á séreignamæla. Það getur slegið út þegar það eru komnir visst margir bílar. Þá er ekki nóg rafmagn fyrir alla í húsinu. Við þurftum því að finna leiðir hvernig væri best að gera þetta. Við byrjuðum á að leggja fullt af ídráttarrörum sem enduðu í einu ídráttarröri. Við komumst í samband við Ísorku og höfum líka unnið með Árvirkjanum hér á Selfossi. Við þróuðum þessa lausn sem við erum með hérna fyrir þessar blokkir. Við erum mjög ánægðir með hana,“ segir Sindri Már.

Sindri Már flutti af höfuðborgarsvæðinu til Þorlákshafnar og sinnir starfi sínu þaðan. „Lóðirnar eru miklu ódýrari hérna og íbúðir miklu ódýrari heldur en í bænum. Með því að bjóða upp á að þú getir hlaðið bílinn þinn heima þá getur þú keypt rafmagnsbíl og íbúð á hagstæðu verði. Þá geturðu unnið í bænum og sparað þér 10–15 milljónir. Það fer eftir því hvar þú ert að skoða stóra íbúð. Ef við miðum t.d. við Valsreitinn, þar kostar tveggja herbergja íbúð 40 milljónir. Hérna kostar hún 26,7 milljónir. Ný Nissan Leaf kostar rétt rúmar 3 milljónir. Þannig að þar erum við að tala um 30 milljónir. Þú sparar 10 milljónir.“

„Fyrsta fjölbýlishúsið sem við byggðum hér í Álalæk 17 er eiginlega alveg komið í notkun. Þar eru bara þrjár íbúðir af tuttugu og þremur óseldar. Þá er búið að selja tíu íbúðir í Álalæk 15 sem við erum að fara að klára núna í mars. Álalækur 13 er ekki kominn í sölu en við erum þó búnir að selja eina íbúð þar. Hann fer í sölu núna í janúar.“

Það sem gerir íbúðirnar sem ÞG verk eru að byggja á Selfossi sérstakar er rafmagnsþátturinn og einnig baðherbergiseiningarnar. Sindri Már segir að hingað til hafi enginn skilað nýju fjölbýlishúsi með hleðslustöðvum eins og ÞG verk er að gera á Selfossi. „Þetta er m.a. gert með þessum hætti vegna þess að það er oft slagur í húsfélögum um hver á að borga hvað. Kostnaðurinn við fleiri hleðslustöðvar er hlutfallslega lítill og við erum að skila meiri gæðum með þessu. Með svona mörgum hleðslustöðvum er ágreiningur um hleðslustöðvar eiginlega sleginn út af borðinu. Það eru þrjár hleðslustöðvar við þessa nýju byggingu og mjög auðveldlega hægt að bæta tveimur við. Tvo bíla má tengja við hverja hleðslustöð. Það eru sex stæði í notkun núna en möguleiki á tíu stæðum fyrir 23 íbúða hús,“ segir Sindri Már.