Um helmingur af stálbitum sem verða notaðir í burðargrind nýju Ölfusárbrúar komu til landsins um páskana. Allir bitarnir eru komnir á verkstað og hafin er vinna við að stilla þeim setja saman. Bitarnir eru tveggja metra háir og um 20 metra langir og hver biti vegur um 30 – 40 tonn. Til þess að flytja stálbitana á verkstað þurfti stærstu krana landsins til þess að hífa þá upp úr skipinu og fóru síðan flutningarbílar með þá í lögreglufylgd á verkstað.
Staða framkvæmda er sú að búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og unnið við uppslátt stöpla ofan á þær. Í Laugardælaeyju er lokið við fyllingu og steypu þrifalags og unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir undirstöðu turnsins sem þar mun rísa. Gatnagerð er langt komin og búið er að steypa upp brú og ný mislæg gatnamót við Laugdælaveg sem mun tengjast við Þjóðveg 1. Verkið hefur gengið vel og allir verkþættir eru samkvæmt áætlun.
