Innanhússfrágangur meðferðarkjarna

Samningsfjárhæð er 6,8 milljarðar króna án vsk.

Verkkaupi er Nýr Landspítali og hófust framkvæmdir í mars 2025

Áætluð verklok eru í janúar 2028

 

Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ

Samningsfjárhæð er 3,3 milljarðar króna án vsk.

Verkkaupi er Nýr Landspítali og hófust framkvæmdir í ágúst 2024

Áætluð verklok eru í febrúar 2027

Innanhússfrágangur meðferðarkjarna

ÞG verk vinnur að innanhússfrágangi 5. og 6. hæða meðferðarkjarna nýs Landspítala. Á 5. og 6. hæðinni eru legudeildir nýja spítalans, sem eru 193 talsins. Á legudeildunum má finna sjúkrastofur, einangrunarstofur og ýmis önnur rými fyrir starfsmenn og gesti.

Helstu verkþættir eru múrverk, innveggir, innréttingar og annar frágangur ásamt allri lagna- og raflagnavinnu.

Flatarmál legudeildanna er um 14.000 fermetrar

Hús heilbrigðisvísindasviðs HÍ

ÞG verk vinnur að uppsteypu og utanhússfrágangi húss heilbrigðsivísindasviðs á Landspítalareit. Nýbyggingin verður tengd núverandi byggingu sviðsins, Læknagarði, og mun hýsa nær allar deildir heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Nýbyggingin er um 11.000 fermetrar að stærð