ÞG Verk og körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hafa skrifað undir nýjan tveggja ára samstarfssamning. Með samningnum verður ÞG Verk áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar, en fyrirtækið hefur stutt dyggilega við bakið á körfuboltastarfi Stjörnunnar.
Skrifað var undir samninginn í nýrri og glæsilegri þakíbúð ÞG Verks í Þorraholti. Það voru Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, Hrefna Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála ÞG Verks, og Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, sem undirrituðu samninginn.
„Við erum stolt af því að gera nýjan samning og styrkja okkur enn frekar sem aðalstyrktaraðili Stjörnunnar í körfubolta. Við hlökkum til að fylgjast með árangri liðsins á næstu tímabilum,“ segir Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks.
Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, fagnar áframhaldandi samstarfi: „Það er mikill styrkur fyrir okkur að ÞG Verk geri nýjan samning til tveggja ára og styðji þannig áfram við það góða starf sem við höfum byggt upp á síðustu árum.“
ÞG Verk leggur ríka áherslu á að taka virkan þátt í nærsamfélaginu og er stolt af því að styðja við öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf í Garðabæ. Samstarfið við körfuknattleiksdeild Stjörnunnar er mikilvægur liður í þeirri stefnu og hlakkar fyrirtækið til áframhaldandi samvinnu á komandi tímabilum.