Fyrir um ári síðan tók ÞG Verk í fyrsta sinn þátt í Erasmus+ sem er verkefni sem Iðan Fræðslusetur heldur utan. Við tókum á móti þremur nýlega útskrifuðum smiðum frá Frakklandi og störfuðu þeir við uppbyggingu á Nýja Landspítalanum við Hringbraut í rúma tvo mánuði.

Nú í september tökum við aftur þátt og bjóðum tvo nýlega útskrifaða smiði frá Frakklandi til starfa, þá Clément og Titouan sem munu vera hjá okkur fram í desember við uppbyggingu á Nýja Landspítalanum við Hringbraut.

Í þeirra námi í Frakklandi er mesta áherslan lögð á vinnu við tréverk, en hjá okkur fá þeir að takast á við allskonar verkefni bæði í innanhúss og utanhúss frágangi.

Við hjá ÞG Verk erum afar ánægð með samstarfið við Iðuna og Ersmus+ og hlökkum til að sýna þeim Clément og Titouan hvernig byggingarframkvæmdir hjá okkur fara fram.