Ölfusárbrú

Bygging 330 metra langrar brúar yfir Ölfusá, gerð vegamóta ásamt undirgöngum og nýrra vegarkafla.  Auk umferðar mun brúin bera uppi lagnir veituaðila, rafmagn, ljósleiðara, heitt og kalt vatn.

Verkkaupi er Vegagerðin og hófust framkvæmdir í nóvember 2024.

Heildarfjárhæð samnings er um 17,9 milljarðar króna.

Áætluð verklok og afhending brúar haustið 2028.